Smíðafélagið, Glugga og hurðaverksmiðja er staðsett í grófinni 15. 230 Keflavík. Fyrirtækið er stofnað 1. október 1998. Tilgangur Smíðafélagsins var að eiga og starfrækja fasteignir.
Glugga og hurðaverksmiðja er sett á fót 1. febrúar þegar Smíðafélagið keypti verkstæði, vélar og rekstur Viðars Jónssonar. Við höfum 660 fermetra fullkominn vinnslusal ástamt 130m2 húsnæði undir aðra starfsemi. 4 Starfsmenn eru starfandi við framleiðsluna.
Meðal véla er tölvustýrð gluggavinnsluvél af gerðinni SCM Methot K sem er önnur af tveimur slíkum vélum á Íslandi, einnig eru 5hausa kílvél fræsarar sagir heflar og aðrar vélar sem fylgja almennum trésmíða verkstæðum. Öllum okkar tækjum og verkfærum er haldið við á besta mögulega máta og eru fagmenn sem sjá um það.
Framleiðsla er aðallega á gluggum og útihurðum hverskonar úr hefðbundnu glugga og hurðaefni svo sem Furu,Oregonpine og Mahogny.
Helstu efnissalar Smíðafélagsins eru Byko, Oxus, 'Ispan Akureyri og fleiri.
Helsti þjónustuaðili okkar eru IÐNVÉLAR, en þeir hafa séð um vélar og verkfæri Smíðafélagsins ásamt viðgerða og uppsetningum á vélum.